ISNIC sem slíkt er alltaf opið, enda rótarlénið .IS notað allan sólarhringinn alla daga ársins. Hægt er að skrá og greiða fyrir lén, og fá það virkjað, hér á vefnum yfir jólin sem endranær.
Niðurfelling stofngjaldsins 1. desember sl. hefur skilað sér í auknum fjölda nýskráninga léna - og sérstaklega léna í eigu einstaklinga. Áberandi eru nýskráningar í fjölskyldulénum, eins og t.d. Siemsen.is sem skráð var í dag.
Starfsfólk ISNIC óskar landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með þökkum fyrir viðskiptin á gamla árinu.