Jan 2, 2010

Jan 2, 2010

Gott ár að baki hjá ISNIC

Starfsfólk og stjórn ISNIC eru stolt og þakklát fyrir nýliðið ár, sem er það besta í 20 ára sögu félagsins hvað nýskráningar léna varðar. Þrátt fyrir niðurfellingu stofngjalds léna þann 1. desember 2008, sem lækkaði fyrsta-árs-kostnað léna um 36%, og enga verðhækkun árgjaldsins, tókst að viðhalda rekstrarafkomu ISNIC í annars erfiðu umhverfi.

Kaupendur .IS-léna létu sitt ekki eftir liggja á árinu sem var að líða. Að meðaltali skráðu þeir 19,4 lén á dag, eða 7.084 lén yfir árið. Aldrei áður hafa fleiri .IS-lén "fæðst" einu ári. Fjöldi virkra .IS-léna í árslok 2009 nam rétt um 27.500 lénum og fjölgaði um 25% á árinu.

Starfsmenn og stjórn ISNIC óska viðskiptamönnum nær og fjær gleðilegs nýs árs með þökkum fyrir liðin ár.

Leave a message and we will reply as soon as we can.
1+3:

Message received