News ➜
Oct 20, 2003
➜ Breytingar á reglum um skráningu og stjórnun léna
Oct 20, 2003
Breytingar á reglum um skráningu og stjórnun léna
Settar hafa verið fram tillögur um breytingar á reglum
um skráningu og stjórnun á léninu .is. Sjá nánari upplýsingar
um þessar breytingar á póstlista
ISNIC um lénamál.
Meginástæður breytinga eru þessar
- Árleg léngjöld verða reikningsfærð á þann máta að eindagi greiðslu
árgjalds miðast við afmælisdag lénsins. Reikningar verða sendir út
tímanlega fyrir afmælisdag léns. Léni verður lokað hafi greiðsla
ekki borist á eindaga. Breyting miðast við lén sem eiga afmæli
eftir 31. desember 2003.
- Opnað verður fyrir skráningu á lénum um vef ISNIC 1. janúar 2004.
Skráning verður alfarið um vefinn frá þessum tíma og hætt verður
að taka við umsóknum bréfleiðis eða um fax.
- Flutningsgjald verður ekki innheimt eftir 1. janúar 2004 sé flutningur framkvæmdur um vef ISNIC.
- Þann 1. júlí 2004 verður opnað fyrir skráningu léna sem innihalda séríslenska stafi.
Mismunandi er hvenær ætlað er að breytingar taka gildi.
Sjá nánar
hér.