Fyrir 30 árum, nánar tiltekið í fyrstu viku ársins 1983 var samskiptaaðferðin TCP (Transmission Control Protocol) tekinn í notkun á Netinu (sem þá hét ARPAnet). Þessi samskipti komu í stað NCP sem hafði verið notað frá stofnun netsins árið 1969.
Á þessum tíma voru ríflega 400 vélar tengdar netinu, en í dag er gróflega áætlaður fjöldi kominn yfir milljarð tækja (sjá Könnun ISC). Internet á Íslandi hf. taldi lengi vel tæki sem skráð voru undir höfuðléninu .is. Þegar talningar hófust árið 1990 voru 14 tölvur skráðar hér á landi, en þegar þessum talningum var hætt (2010) voru tæp 300 þús tæki skráð. (Sjá tölulegar upplýsingar)