Afrit reikninga ISNIC, ásamt hreyfingalista yfir viðskiptin, er að finna á Mín síða undir liðnum Reikningar. Til þess að skrá sig inn er einfaldast er að skrifa nafn lénsins inn í stóra leitargluggann (hér á forsíðu ISNIC) og finna/endurstilla NIC-auðkennið (notendanafnið) og lykilorðið þannig. Smellið á Týnt lykilorð við viðeigandi netfang sé lykilorðið týnt og tröllum gefið.
Athugið, að skrá þarf sig inn á NIC-auðkenni greiðanda til þess að fá aðgang að reikningum.