Event log ➜
Jan 10, 2024
➜ Árás á nafnaþjóna ISNIC
Jan 10, 2024
Árás á nafnaþjóna ISNIC
Stór DDoS árás var gerð á nafnaþjóna ISNIC og hafði það áhrif á vef, EPP, WHOIS og RDAP þjónustur.
Sem fyrr varð grunnþjónustan við .is (DNS-þjónustan) ekki fyrir áhrifum.
Fyrst varð vart við árásina 2024-01-10 kl. 15:30 og var bakvakt fljótlega byrjuð að greina vandamálin.
Ekki tókst að verjast árásinni að fullu fyrr en kl. 16:55 og voru þá allar þjónustur uppi og svöruðu venjulega.
Verið er að greina árásina og finna leiðir til að herða okkar kerfi til að verjast slíkum árásum betur í framtíðinni.