Undanfarið hafa borist umsóknir um lén sem ekki er búið að vista eða eru ekki rétt uppsettar hjá vistunaraðila, Internet þjónustuaðila eða þeim sem vistar lénið.
Hafi lén ekki verið rétt vistað innan tveggja virkra daga frá því að
umsókn berst til ISNIC er umsókn hafnað. Ástæðulaust er að láta
þetta henda sig því auðvelt er að kanna hvort tiltekið lén er rétt
uppsett eður ei.
Það sem vita þarf er lénnafnið og nöfn þeirra nafnaþjóna sem þjóna léninu hjá vistunaraðila.