Dec 17, 2019

Dec 17, 2019

Breytt úrskurðarnefnd léna

Stjórn ISNIC samþykkti á fundi sínum í dag áður auglýsta breytta skipan Úrskurðarnefndar ISNIC. Breytingin felst í því að formaður nefndarinnar úrskurðar almennt einn í málum, en kveður til tvo til viðbótar, telji hann mál „og aðstæður að öðru leyti“ (eins og segir í nýju reglunni) þannig vaxið. Breytingin tekur gildi 17. janúar 2020.

Aðeins 1-2 mál berast Úrskurðarnefnd ISNIC árlega, en undanfarið hefur borið nokkuð á aukningu svokallaðra „abusive domain registration“, þar sem lén virðast fyrst og fremst skráð í annarlegum tilgangi. Of tímafrekt og kostnaðarsamt þykir að þrjá nefndarmenn þurfi til að úrskurða í „einföldum“ deilum um nýskráð lén.

ISNIC bendir á að dómar við héraðsdómstóla eru felldir af einum dómara og að Úrskurðarnefnd ISNIC, sem aðeins er n.k. gerðardómur, úrskurðar eingöngu að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Sjá nánar Reglur um Úrskurðarnefnd léna.

Leave a message and we will reply as soon as we can.
1+3:

Message received