17. okt. 2008

17. okt. 2008

Frekari breytingar á skráningarreglum .IS-léna

Stjórn ISNIC hefur nú útvíkkað fyrri ákvörðun um skráningu .is-léna á erlenda rétthafa þannig, að ekki er lengur krafist að tilgreindur sé umboðsmaður (hvorki erlendur né innlendur). Þess vegna, og til þess að skerpa á kröfum um skráningu erlendra rétthafa, verða eftirfarandi breytingar gerðar á skráningarreglum ISNIC.

Breytingarnar taka eftir sem áður gildi þann 29 október n.k. og verða eftirfarandi:

Við grein 1.1.3 Rétthafi bætist málsgrein:

  "Erlendur rétthafi er sá sem ekki hefur skráða íslenska kennitölu."
Grein 2.1 Almennt hljóði svo:
  "2.1 Umsækjandi sem óskar eftir að fá skráð lén gengur frá greiðslu á 
   stofngjaldi léns og skráir lénið á vef ISNIC. Umsækjandi skal 
   hafa hæfi til þess að skuldbinda sig eða viðkomandi lögaðila í samræmi 
   við gildandi lög á hverjum tíma.
Greinar 2.2. Innlendir umsækjendur og 2.3. Erlendir umsækjendur verði felldar niður.

Við grein 3. Skráning léna bætist við grein 3.8

  
  "3.8 ISNIC áskilur sér rétt til að hafna skráningu léns á erlendan
   rétthafa ef skráningarupplýsingar um rétthafann eru augljóslega 
   rangar og/eða ófullnægjandi."
og við grein 6. Umskráning léna bætist við grein 6.3.2

  "6.3.2 ISNIC áskilur sér rétt til að hafna umskráningu léns 
   ef skráningarupplýsingar um nýjan rétthafa
   eru augljóslega rangar og/eða ófullnægjandi."

og við grein 8. Brottfall léna bætist við grein 8.7
  
  "8.7 Reynist upplýsingar um erlendan rétthafa léns augljóslega rangar þrátt fyrir
   ítrekaðar tilkynningar þar að lútandi til tengiliðar rétthafa, getur ISNIC lokað
   léni viðkomandi. Hafi lén verið lokað í 60 daga hjá ISNIC er það afskráð og afmáð,
   réttur yfir léni fellur niður og lénið er laust til skráningar á ný.
  
og að lokum verður grein 1.1.16 Upplýsingar í rétthafaskrá þannig:
  
  "1.1.16 Rétthafi og tengiliðir bera ábyrgð á að réttar upplýsingar séu skráðar í 
   rétthafaskrá ISNIC. ISNIC uppfærir nöfn íslenskra rétthafa og tengiliða samkvæmt
   þjóðskrá og fyrirtækjaskrá daglega. ISNIC áskilur sér rétt til að uppfæra heimilisföng
   hjá íslenskum rétthöfum og tengiliðum til samræmis við þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá
   sé þess óskað". 
 
Skildu eftir skilaboð og við munum hafa samband næsta virka dag.
1+3:

Skilaboð móttekin