Fréttir ➜
19. maí 2009
➜ Nýskráningar léna fleiri en afskráningar þrátt fyrir allt
19. maí 2009
Nýskráningar léna fleiri en afskráningar þrátt fyrir allt
Efst til vinstri, hér á vef ISNIC, er tala sem sýnir heildarfjölda skráðra .is léna á hverjum tíma. Talan hækkar við nýskráningar en lækkar við afskráningar. Sem stendur [19.5. kl. 09:50] eru 24.964 .is lén skráð. Þrátt fyrir erfitt efnahagssástand þá heldur .is lénum áfram að fjölga. Mestu skiptir að stofnkostnaður léna var felldur niður 1. desember sl. sem þýðir að nýtt lén kostar kr. 7.918 í stað kr. 12.450 áður, sem þýðir
36% lækkun. Það munar um minna!