Fréttir ➜
11. nóv. 2009
➜ Góðar fréttir frá punktur IS
11. nóv. 2009
Góðar fréttir frá punktur IS
Fjöldi .IS léna hefur nú náð 27.000 lénum og hefur vaxið hratt undanfarin tvö ár. Þannig jukust nýskráningar í september um
77% á milli ára og í nýliðnum október um
45% milli ára. Aukning virkra léna undanfarna 12 mánuði er
34% og aukningin sl. 24 mánuði er 68%.
Lénaskráningar tóku kipp 1. desember 2008 þegar stofngjaldið var fellt niður og kostnaður við nýskráningu .IS-léna lækkaði um 36% í krónum talið. Starfsmenn ISNIC hafa sl. þrjú ár gert margar mikilvægar breytingar á þjónustu og innra notendaviðmóti, sem hafa haft jávæð áhrif á fjölgun léna. Á nýju ári opnar ISNIC nýjan vef með mörgum áhugaverðum nýungum.