Fjöldi .IS-léna hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár, en vöxturinn tók kipp í nóvember 2008 er stofngjald léna var fellt niður og fyrsta árgjaldið lækkaði um 36%. Þá hefur verð léna lækkað um tæp 50% að raungildi þar sem árgjald .IS léna hefur staðið í stað í 10 ár. Meðal annars þetta, ásamt aukinni og bættri þjónustu, skýrir rúmlega 100% fjölgun léna sl. 3 ár.