ISNIC óskar viðskiptamönnum og landsmönnum öllum farsældar á nýju ári með þökkum fyrir viðskiptin á liðnum árum. Árgjald léna hefur nú lækkað í kr. 5.980. Nú geta allir leyft sér að búa og starfa á internetinu undir sínu eigin .is-léni. Munið að hlífa augum og eyrum og vernda dýrin á gamlárskvöld.
Áramótakveðja, starfsmenn og stjórn Internets á Íslandi hf.