1. apr. 2016

1. apr. 2016

Lénin uppseld!

(2 apríl, upplýst um „aprílgabb“, eftir að nokkrir höfðu hringt og virst mjög áhyggjufullir).

Ágætu viðskiptamenn, nú er svo komið að öll .is-lén eru uppseld í gagnagrunni ISNIC. Eftir endalausar nýskráningar undanfarin 27 ár hlaut að koma að því að .is-lén kláruðust – og það hefur nú gerst!

57.350 .is-lén eru skráð í gagnagrunni ISNIC, sem þar með er orðinn fullur. Þeir sem eiga ekkert lén verða því að kaupa notað lén af einhverjum öðrum, eða koma á skrifstofu ISNIC fyrir klukkan fjögur í dag og athuga hvort einhver lén hafi losnað.

Góða helgi.

Skildu eftir skilaboð og við munum hafa samband næsta virka dag.
1+3:

Skilaboð móttekin