17. apr. 2019

17. apr. 2019

Páskafrí hjá skrifstofu ISNIC

Skrifstofa ISNIC er lokuð frá 18. apríl, skírdegi, til þriðjudagsins 23. apríl.

Minnt er á að hægt er að endurnýja (opna) lén með því að greiða árgjaldið með korti á vef ISNIC, eða greiða bankakröfu (greiðsluseðil) í netbanka. Kröfuhafinn er Internet á Íslandi hf.

Auk þess að innskrá sig með NIC-auðkenni og lykilorði, eða nota Týnt lykilorð og fá endurstillingarslóð sent á uppgefið netfang (email), er að einnig hægt er að innskrá sig með rafrænum skilríkjum og Íslyklinum góða. Gleðilega páskahelgi – akið varlega. Starfsfólk ISNIC.

ISNIC er með 67.389 lén í umsýslu um þessar mundir. Aðeins með því að viðhalda og jafnvel auka sjálfvirkni verður hægt að halda árgjaldi léns (kr. 5980) óbreyttu áfram.

Skildu eftir skilaboð og við munum hafa samband næsta virka dag.
1+3:

Skilaboð móttekin