Atburðaskrá ➜
6. okt. 2020
➜ Röskun á þjónustu
6. okt. 2020
Röskun á þjónustu
Flestar af þjónustum ISNIC, þó ekki DNS þjónar .is lénsins, urðu sambandslausar í dag á milli 13:45-13:54.
Bilunin, sem orsakaðist af mistökum við stillingu á netbúnaði, hafði þau áhrif að flestar þjónstur ISNIC sem hýstar eru í vélasal ISNIC misstu samband. Nafnaþjónusta fyrir .is lénið er hins vegar dreifð um allan heiminn með anycast og hafði þessi bilun engin áhrif á uppflettingar .is léna.