ISNIC tilkynnir hér með breytingu á árgjaldi .is léna. Frá og með fimmtudeginum 17. október hækkar árgjald léna úr kr. 6.789 í kr. 7.180, m. vsk. Árgjald í útflutningi hækkar úr 34,9 EUR í 36,9 EUR, án vsk.
Verðbreytingin er á pari við breytingu á vísitölu neysluverðs frá síðustu verðhækkun, sem er 5,8%.
Athugið að verðbreytingin tekur gildi eftir viku, svo allar nýskráningar og endurnýjanir sem fara fram fyrir 17. október verða á núverandi verði.