Viðhaldsgluggar ISNIC eru þrisvar í viku. Á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 10:30
Á þriðjudögum og fimmtudögum eru hugbúnaðaruppfærslur framkvæmdar á flestum þjónustum ISNIC.
Þeim er dreift á tvo daga
til að minnka áhættu á allsherjar útfalli á þjónustum.
Á miðvikudögum eru hugbúnaðaruppfærslur á gagnagrunnum framkvæmdar. Ef og þegar hugbúnaðaruppfærsla krefst þess að gagnagrunnsþjónustur séu endurræstar þá má búast við örstuttu útfalli á þjónustum eða villum.
Ef upp koma öryggisatvik sem þarf að bregðast strax við þá geta uppfærslur verið framkvæmdar utan viðhaldsglugga.
Internet á Íslandi hf - ISNIC