2. okt. 2008

2. okt. 2008

0% verðbólga hjá ISNIC !

Stjórn Internets á Íslandi hf. ákvað í haust að engar verðbreytingar skuli gerðar á verðskrá félagsins að sinni, þrátt fyrir rúmlega fimmtungs aukningu rekstrarkostnaðar milli ára. Stjórnin vill með þessu gefa starfsmönnum og stjórnendum rými til þess að nýta tækifærið sem felst í mikilli verðlækkun .is-léna í erlendum gjaldmiðlum. Aukin áhersla verður á næstunni lögð á sölu léna til einstaklinga og til erlendra aðila. Tæplega fjórðungur .is-léna eru skráð á einstaklinga og innan við 5% á erlenda aðila.

Virkur fjöldi .is-léna er nú um 22.050 og hefur fjölgað um 16% sl. ár. ISNIC stefnir á að fjölgun léna á þessu ári og því næsta muni vega upp á móti auknum kostnaði og gott betur. Áskorunin felst í því að nýta verðlækkunina sem orðin er gagnvart erlendum keppinautum til aukinnar markaðssóknar gæðalénsins .is.

Skildu eftir skilaboð og við munum hafa samband næsta virka dag.
1+3:

Skilaboð móttekin