Uppboð á lénum
Internet á Íslandi hf, ISNIC, hefur ákveðið
að bjóða upp eftirtalin lén í samræmi við
bráðabirgðaákvæði A í reglum um skráningu
léna og stjórnun á léninu .is
Boðin verða upp:
a) öll lén þar sem nafn léns inniheldur aðeins tölustafi.
b) eftirtalin lén:
arts.is
firm.is
ftp.is
internet.is
irc.is
mail.is
nom.is
rec.is
shop.is
telnet.is
usenet.is
web.is
who.is
www.is
Frestur til að skila inn tilboðum er til lok dagsins 28. maí 2002.
Lénin eru boðin upp með þeim hætti að skilað er inn skriflegum tilboðum til
ISNIC sem opnuð verða miðvikudaginn 29. maí 2002 kl. 11:00 í Tæknigarði,
Dunhaga 5,
IS-107 Reykjavík. Öllum frjálst að fylgjast með opnun tilboða.
Tekið er við tilboðum á skrifstofu ISNIC í Tæknigarði. Einnig má senda
tilboð í pósti. Athugið að tilboð þurfa að berast til ISNIC í
síðasta lagi 28. maí 2002. Munið að undirrita tilboð.
Tilboð send í pósti ber að stíla á:
Internet á Íslandi hf.
b/t uppboð
Tæknigarði
Dunhaga 5
IS-107 Reykjavík
Skilmálar
Eftirfarandi skilmálar gilda um þátttöku í uppboðinu. Uppfylli tilboð
þátttakanda að einhverju leyti ekki þau skilyrði sem sett eru verður litið á tilboðið sem ógilt og verður ekki tekið tillit til þess.
- Frestur til að skila inn tilboðum er til lok dagsins 28. maí
2002.
- Virðisaukaskattur 24,5% leggst ofan á tilboðsupphæð.
- Lágmarksupphæð fyrir hvert lén er kr. 10.000,-.
- Hvert lén er boðið upp sérstaklega og verða þátttakendur að gera tilboð í hvert lén fyrir sig.
- Hver þátttakandi getur boðið í fleiri en eitt lén, en þó gert einungis eitt tilboð í hvert þeirra.
- Hæsta boði verður tekið í hverju tilviki fyrir sig. Verði boð jöfn ræður hlutkesti.
- Öll tilboð renna út 2. júlí 2002 og eru þáttakendur í uppboðinu
bundnir við boð sín þar til. Lén sem boðin eru upp og enn eru óskráð
í lok 2. júlí 2002 verða þá laus til almennrar umsóknar.
- Þann 30. maí 2002 verða lén, sem boðin eru upp, birt á vef ISNIC
ásamt nöfnum handhafa hæstu boða. Handhöfum hæstu boða verður einnig
send tilkynning í tölvupósti ef netfang fylgir tilboði.
Hafa hlutaðeigandi þá frest í fjóra (4)
virka daga til að ganga frá umsókn, greiðslu og vistun á léninu,
samkvæmt reglum ISNIC, svo unnt sé að skrá það.
Falli handhafi frá tilboði með því að ganga ekki frá nauðsynlegum
atriðum svo skrá megi lénið er næsthæsta boði tekið með birtingu á
léni og handhafa næsthæsta tilboðs á vef ISNIC og svo koll af kolli.
- Þátttakendur í uppboðinu eru bundnir við boð sín allt þar
til þau lén sem þeir buðu í hafa verið greidd og vistuð.
- Árgjald af þeim lénum sem boðin eru upp skulu greidd
samkvæmt reglum ISNIC árlega eftir ár frá skráningu lénanna.
- Eftirfarandi upplýsingar skulu koma fram í tilboðum:
1. Nafn og kennitala þátttakanda í uppboðinu.
2. Heimilsfang þátttakenda.
3. Netfang þátttakenda ef hann hefur slíkt.
4. Lén sem boðið er í (t.d. 120.is eða web.is)
5. Upphæð sem boðin er í íslenskum krónum.
- Tilboð skulu undirrituð. Tekið er á móti tilboðum á skrifstofu
ISNIC. Einnig má senda tilboð í pósti (ábyrgðarbréf) stílað á:
Internet á Íslandi hf.
b/t uppboð
Tæknigarði
Dunhaga 5
IS-107 Reykjavík