Fyrir kemur að einstaka innlendir viðskiptamenn biðji ISNIC að senda sér hreyfingalista og afrit af reikningum, sem ISNIC getur því miður ekki orðið við, enda er hvorutveggja aðgengilegt viðskiptamönnum á Mín síða undir liðnum Reikningar.
Aukinheldur hefur ISNIC ekki leyfi til að senda út upplýsingar um viðskipti einstakra viðskiptamanna.
ISNIC sendir reikninga sjálfkrafa á uppgefið netfang skráðs greiðanda og útprentaðan reikning á uppgefið heimilisfang hans, sé þess óskað (sjá u. Mínar stillingar, afþakka pappír já/nei). Umsýsla léna er í eðli sínu sjálfsafgreiðsluþjónusta og vefþjónusta ISNIC verður sífellt betri og einfaldari í notkun.
Með því að rita nafn léns inn í stóra leitargluggann, hér á forsíðu ISNIC, má finna tengiliði þess og óska e. nýju lykilorði fyrir innskráningu með því að smella á hlekkinn „Týnt lykilorð“ við netfangið sem við á – t.d. netfang greiðandans. Hvorki þarf að muna lykilorðið né heldur notandanafnið (NIC-auðkennið), sem er ígildi viðskiptamannanúmers hjá ISNIC, heldur nægir að vita eingöngu nafn lénsins.
Árgjald léns fyrir fyrirtæki er nú kr. 4.802 og hefur lækkað um hart nær 70% að raunvirði frá árinu 2000. Gjaldið ber ekki aukaþjónustuna, sem felst í handavinnunni við að grafa upp, taka saman og senda einstaka viðskiptamönnum afrit af reikningum. Það gerði það í gamla daga, en ekki lengur.